frændur og frænkur..
Staðarhólsættbálkurinn
Blog afkomenda Brynhildar Rögnu og Sigurgeirs, búsett á Staðarhóli í Eyjafjarðarsveit. Þau eiga 10 börn sem öll eiga börn sem eiga svo sumhver börn.
Barnasíður
25.11.2008 14:10:30 / alma

Nóvember

Gauti frændi hefur nú gert á www.facebook.com, hóp sem ber nafnið Staðahóll - fyrir þá sem eiga ættir sínar að rekja til Staðarhóls.

Svo nú er þetta góð afsökun til að skrá sig á www.facebook.com - fyrir þá sem hafa ekki gert það enn..:) - góð leið til að hafa auga með ættingjunum, þarsem þessi síða hér virðist ekki gera nógu mikið gagn:)

jæja, nóvember kveðjur!

kv. Alma


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 15:50:47 / alma

Ættarbýlið

Sælt veri fólkið. Nú er ég mikið að velta fyrir mér einu um okkar kæra ættarbýli, Staðarhól. Ég stóð í þeirri meiningu að hann hafi verið byggður 1926.  En svo fór ég mína reglulega heimsókn í íslendingabók.is og þar kom fram að Sigurgeir Garðarson, langalangaafi hafi verið bóndi á Öngulstöðum og á Staðarhóli. En hann dó samt 1910, samkvæmt Íslendingabók.is. Hvernig var þetta þá? Nú spyr ég þessa eldri og fróðari. Gaman væri að vita sögu Staðarhóls og jarðarinnar. Ég veit þó að Staðarhóll er semsagt á þessari gömlu Öngulstaðarjörð sem í byrjun var nú landnámsjörð:d




» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 10:08:20 / alma

Gleðilega páska!



» 0 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 16:02:49 / alma

Hittingur í sumar?

Grillættarhittingur í sumar?

:):):):):):):):):):):)

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 12:14:59 / alma

Aloha

Gleðilegt nýtt ár! Vonandi voru hátíðirnar góðar:) 

Allt gott að frétta úr bólstaðarhlíðinni.  Okkur gekk báðum vel í prófum og nýtt misseri er byrjað af fullum krafti. Er með einn afar fyndinn kennara sem er afar hárprúður, mætir alltaf með bindi og notar gamaldags glærur í tíma.

 
Hvernig er með plön fyrir ættarmót í sumar?? Er ekki vilji fyrir því??:):):)

 

kveðjur

 

Alma Sigrún
 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 19:37:12 / alma

Fréttir af mér:)

Er það bara ég eða er ættbálkurinn svolítið lélegur í að blogga? Við verðum að fara standa okkur betur svo ég henti hérna einu bloggi inn.. ég tók einnig mér það bessaleyfi að prússa aðeins uppá síðuna okkar - hún var orðin svoldið þreytt..8|

Þær fréttir eru stærstar hjá mér að , í fyrsta skipti á minni litlu ævi, verð ég ekki í Eyjafjarðarsveit um jólin. Foreldrar Hödda (höddi er kærastinn minn) hafa boðið okkur og Tinnu (systur Hödda) út til Svíþjóðar í heimsókn yfir jólin til Þórðar, sem er eldri bróðir Hödda - Þórður er skurðlæknir sem býr í Svíþjóð.8)

Við förum 22.des og verðum til 27.des - búið að kaupa miða. Hlakka mikið til en það verður afar skrítið að fara ekki norður, fá vondu skötu lyktina upp í nefið á Þorláks, skreyta með jólaskrautinu í Brekkutröð og sérstaklega finnst mér slæmt að missa af hryggnum og góðu sósuni hennar mömmu. Og einnig að hitta voða fáa ættingja yfir jólin en þó fæ að hitta Steinunni 26/27.des en hún verður hjá Álfheiði frænku okkar, hinni ættinni.., í Hollandi yfir jólin. Fyrir þá sem eru algjörlega fréttalausir er Steinunn útí Svíþjóð í skiptinámi og kemur til landsins aftur í janúar. Býst við samt að flestir viti þetta nú!;)

Annars er allt gott að frétta af okkur hér í Bólstaðarhlíð, erum á fullu í lærdómi og prófakvíðinn er strax byrjaður að láta kræla á sér í HÍ, bókasafnið er fullt núna í vikuna. Einnig út af því að hluti nemenda er í lestrarvinnufríviku. Við í sagnfræði t.d. fáum svona frí en Höddi sem er í lífeðlisfræði fær ekki svona frí og kannaðist ekkert við það.:)

Er svo að vinna á frístundaheimili sem er gaman en afar illa borgað en kvíðið engu - er á námslánum en fæ þau eftir áramót og ætla ekki að vinna þá heldur að einbeitta mér að náminu. Hef nefnilega komist að því að þetta er 50% nám í skóla og svo 100% í viðbót í heimalærdómi - mikið að lesalesalesa.. Jói ætti nú að kannast við þetta, sjálfur verðandi sagnfræðingur..

Annars bið ég að heilsa öllum ættingjum og sérstaklega nýjum meðlimum í ættina 

TIL HAMINGJUUUU EVA OG CO:) alltaf gaman að fá nýja litla sæta ættingja:haha: 

 

kveðjur úr bólstaðarhlíð

Alma Sigrún 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 14:49:37 / gauti

Dansa hvað er betra en að dansa nú....dansa hvað er betra en að dansa

As we know,
There are known knowns.
There are things we know we know.
We also know
There are known unknowns.
That is to say
We know there are some things
We do not know.
But there are also unknown unknowns,
The ones we don't know
We don't know.

 

 Liverpool ó Liverpool...Anfield ó Anfield...c u in october!!!

Nú stefnir allt í eina stórkostlegustu ferð er farin hefur verið, ferð til Mekka  -  það var alltaf bara tímaspurnsmál hvenær ferðin yrði farin, þökk sé frænda vor Magnúsi þá mun hún [væntanlega] vera farin í október n.k. Lengi lifi Maggi...hipphipphúrra..etc.  Ég bara get ekki hætt að brosa...:haha: en annað - er e-ð að frétta af hitting í sumar? Veit einhver hvort einhver viti um einhvern eða einhverja er ætla að hittast á Staðarhóli í sumar ??? :!:

regards, agf


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 17:49:11 / alma

útskrift á næstunni

Jæja frændur og frænkur.  Þá er komið að því!  Ég er að fara útskrifast sem stúdent úr Menntaskólanum í Kópavogi þann 25.maí.2007.  Og auðvitað verður haldin veisla:) að Brekkutröð 6, 601 Akureyri - en ath. að hún verður haldin 28.maí. Hann pabbi er eitthvað að sýsla við boðskort en þau verða send út bráðlega:) Það er öllum systkinum hans pabba boðið og liðinu þeirra:)  Hlakka mikið til að geta sagt að ég sé orðin stúdendína ( getur maður annars ekki sagt það?- stúdendína? eða er það bara stúdent.??)

 

Það var dimmiterað í MK á síðastliðinn föstudag og vorum við Kengúrur..  Við fórum um skólann, gerðum dyraat í Kópavogi og fórum niður í bæ í búningum.. Mikið gaman.  

Núna á ég bara eitt próf eftir og svo er þetta búið:)

skemmtilegtskemmtlegt..

 Annars er allt gott að frétta af manni.. Við erum bæði í prófalestri núna og ég er á fullu að vinna á Café Ólíver.. þó bara á daginn:)  Verð að vinna í Leikskólanum Furuborg í sumar

 

kv.Alma..:) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 15:38:41 / eva

Vissuð þið???

Jæja kæra frændfólk

 

Mér finnst við hæfi að nýta mér tækni nútímans og koma með fréttirnar hér. Ætlaði nú reyndar að láta sjá mig um páskana á Staðarhóli en var veik. Þurfti svo að læra undir próf núna þegar fermingarnar voru...sem er auðvitað algjör óþarfi...en geri bara eins og hinir.

Amma og afi fengu nú reyndar þessar fréttir frá föður mínum, eins og reglurnar segja til um. En vegna þess hve lítið ég hef hitt ykkur hafa fréttirnar bara ekki verið nógu fljótar að berast. Hef reyndar fengið hana Elínu Mist í lið með mér en held að hún hitti ykkur hér í borginni ekki nógu oft til að skúbba þar.

Svo er bara spurning hvort einhver trúi þessu þar sem svona fréttir hafa verið sagðar í gríni af ónefndum frændum hér á vefnum, en þá vísa ég ykkur bara á frú Brynhildi. Ég á sem sagt von á öðru barni í byrjun október. Heilsan er góð þessa dagana en var svolítið að kíkja ofaní klósettið fyrir nokkrum vikum. Kormákur er nýbúin að fá að vita þetta og er hæstánægður en sagði reyndar um daginn að mamma hans væri ennþá með barn í maganum, þannig að þetta verður ábyggilega löng bið fyrir hann. En þar sem ég er komin með ágætis bumbu fékk hann að vita.

 

Jæja best að halda aðeins áfram að þykjast læra

Bestu kveðjur Eva


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 15:26:05 / gauti

sms

jæja komnar myndir...eða mynd...!...hver er annars fermingjagjöfin í ár? kannski nýtt vasaljós


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 22:06:33 / gauti

ást og hamingja

HÆ!HÆ!HÆ!HÆ!HÆ!HÆ!HÆ!

e-ð slúður?


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 19:57:04 / gauti

Verðbólgan fer lækkandi

Nú er komin tími á blogg! Af mér og mínum hefur ýmislegt verðið að gerast á 3. ársfjórðung ársins. Aþena Sól hóf ballet ferilinn, finnur telpan sig vel og dansar um allt á tjútjú pilsinu. Angantýr Máni hóf skólagöngu sína nú á haustmánuðum, var reyndar í núll bekk en er kominn í fyrsta bekk – sexárabekk SKO. Hefst þá gangan fyrst fyrir alvöru, með heimalærdóm og öðru tilheyrandi. Litli Valsarinn lætur knattspyrnuna þó ei hafa áhrif á lærdóminn. Tannálfurinn kom í sína fyrstu heimsókn, en tvær duttu á tímabilinu hjá Mánanum. Eftir fyrstu losnaði fljótlega önnur, spruttu þá upp heilmiklar vangaveltur um tannálfinn og hvort ekki væri hægt að gera út á þessar tennur. Þúsundkall á tönn, ekki slæmur business þar. Krakkarnir í bekknum fengu sko ekki bara fyrir þá fyrstu, og einn félaginn fékk sko fimmþúsundkall fyrir framtönn. Álfurinn kom þó bara einu sinni, fór þá engu þótt seinni tönnin lægi undir koddanum svo dögum skipti Helstu fréttirnar eru þó þær að næsta matarboð mitt mun fara fram að Blönduhlíð 6, 105 Rvk. Nýjir eigendur risíbúðar munu vera Arnar Gauti og Íris Rún, hjón. Fáum við afhent 22. nóvember n.k. Ótrúlegt hvað milljóna skuldsetning getur gert mann glaðan. [horfir út í loftið með kleppsbrosi!] Gautinn steig stórt skref í vikunni hvað mataræðið varðar...engar mjólkurvörur, enginn sykur, ekkert hvítt hveiti né annað álíka unnið, engar unnar matvörur, ekkert kaffi og engin bjór og síðast en ekki síst engin aukaefni. Ætla að prófa þetta í tvær vikur. Annars erum við nokkuð góð, bara 74 dagar í jólin... Jólakveðja eiginmaður, eiginkona og börn

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 12:55:02 / alma

Fréttir úr borginni..

Smá fréttir úr borginni -

Ég og Höddi erum flutt úr Grafarholtinu og í Bólstaðarhlíð 23.  Mun betra og þægilegra - að tala ekki um ódýrara.  Fengum íbúðina í gegnum BN, sama fyrirtæki og var með blokkina í Grafarholti. Okkur leið strax betur þar þótt að íbúðin sé minni en þó er hún betri.  Við fluttum bara í seinustu viku og erum búin að ,,pakka upp" og erum að setja upp myndir og svoleiðis.  Vorum að enda við að fá okkur internet í gær og heimasíma þó við eigum eftir að stilla þetta allt og fá okkur símann sjálfan:) Var einmitt að pæla í þessu í gær með heimasímann - langar voða í gamlan, stórann og hvítann - svoldil nostalgía í mér:) hehe.. þið vitið stóru hvítu símana með stóru símatólin og annaðhvort stóra takka eða hringlótt takkaborð.. þeir eru svo sætir..

En ég og Hörður erum bæði byrjuð í skólanum - ég í MK og hann í HÍ.  Ég er á mínu seinasta ári og býst við að útskrifast í vor.  Stefni á sögu og miðaldarsögu í HÍ og svo hver veit, máske kennararéttindin.  En Hörður skipti yfir í líffræði og er ánægður þar.

Ég vona innilega að það verði ættarmót næsta sumar líka - því ég missti af þessu - einn einu sinni! ... dísús.. þið vitið ekki hvað mig langaði mikið að koma!!  En ég var þá helgi að byrja í nýrri vinnu og átti að fá íbúðina þá svo ég réð ekkert við það...Já ég byrjaði nýlega á Olíver og líkar bara vel við - get hjólað/gengið í vinnuna. Greattt!!

En ég held að þetta sé fínt í bili - 

sjáumst - Alma Sigrún , týnd í borgini... ;) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 15:51:07 / gauti

föstudagur til fjár!

Sigurgeir Finnsson var þrítugur í gær,

 30 HAMINGJUÓSKIR love and kisses !!!

Var lengi að velta því fyrir mér hvað ég ætti að gefa manninum, hugljómunin kom í gær. Á meðan ég var að velta þessu komst ég að því að þrítugur rímar við skítugur og thirty rímar við dirty – tilviljun ?  Þrjátíu ára brúðkaupið hefur verið helgað perlum og persónulegum hlutum, legg ég því til að allir klæðist perlum f.h. laugardaginn 18. ágúst n.k. til hyllingar þeim er urðu þrítugir á árinu…enn og aftur til hamingju kæri bróðir.

P.S. ég var að velta fyrir að rita e-ð sniðugt um töluna 30, en datt bara frekar niðurdrepandi hluti í hug m.a. þrjátíu ára stríðið og svo varð Davið konungur þrjátíu ára….ákvað svo að gúggla það fann ég þá þessa ágætu vísu um aldurinn.

 

 



Um aldur mannsins
Fyrstu tíu vetur: barn,
tuttugu ára: ungur,
þrjátíu ára: fullorðinn,
fjörtíu ára: í sínum blóma,
og þá hvorki aftur né fram,
fimmtíu ára: athugaaldur,
sextugur: með aldri,
sjötugur: færist aldur á,
áttræður: fellur minnið frá,
níræður: þarf staf að fá,
hundrað ára: náði guð þá.

 

 



Annars er allt svo sem ágætt að frétta af mér og mínum. Er á leið norður yfir heiðar  næstu helgi, reikna með að vera við Háls í Öxnadal um tíuleytið, mæli eindregið með því að allir sem sjá sér fært um að koma, hitti mig þar og þar getum við grátið saman, hlegið saman, sofnað saman og elskað saman undir stórkostlegum tónum Sigurrósar. Svo á laugardaginn verður tjaldað í Vaglaskógi (ef veður verður gott) og hið árlega pulsupartý haldið milli 18:00 og 22:30...drífa sig svo! því  þetta gæti orðið hin besta upphitun fyrir komandi hitting (sem reyndar enginn virðist ætla á, miðað við athugasemdir síðustu færslu)


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 16:58:07 / gauti

love and kisses

Jæja nú styttist í hitting!!!  og langar mig því að heyra e-ð í ykkur með það…á að mæta, í hverju ætliði að vera, koma kærusturnar/arnir með o.frv.  Svo var það eitt enn, nú hef ég sama og ekkert heyrt um þetta, og er eiginlega ekki alveg viss um að ég komist, en endilega komið með e-ð slúður – hvað á að gera, hverjir mæta og hver ætlar að vera fulli frændinn ef ég mæti ekki??

Krgds   agf


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 7302
Klukkan
Könnun
Hvar verður þú um jólin?
Fyrir norðan
2 atkvæði

Fyrir sunnan
0 atkvæði

Fyrir austan
0 atkvæði

Fyrir vestan - (bíddu eru einhverjir fyrir vestan?)
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 2
Dagsetning
19. mars 2010